Vélvirkjun
Vélvirkjun er löggilt iðngrein
Meðalnámstími í vélvirkjun er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi málmiðngreina, 6 annir í skóla og 60 vikna starfsþjálfun.
Markmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem vélvirkjar inna af hendi, þ.e. uppbyggingu og viðhald véla, kælikerfa og loftstýringa, bilanaleit og stýringar.
Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.