Hvar er fagmennskan eiginlega?

Heldrimannaferð 2017

Fátt er góðu félagi dýrmætara en tenging við félagsmenn og þar eru „heldri félagsmenn“ ekki undanskildir. Hin árlega „heldrimannaferð“ er fastur liður í því sambandi og í ár tóku 86 félagar þátt í ferðinni, auk formanns, ljósmyndara og fararstjóra.

Félagar voru sóttir frá Akranesi, Reykjanesi, Reykjavík, Hveragerði og Selfossi og í tveimur rútum var haldið að Stóra Núpi við neðri hluta Þjórsár þar sem þátttakendur fræddust um virkjanir og framtíðaráætlanir á svæðinu. Því næst lá leið manna að Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum, ekið niður með Þjórsá, Landsveg, að Næfurholti og Lava Centre á Hvolsvelli skoðað. Þar var að auki sungið við harmonikkuleik en ferðinni lauk með viðkomu við Urriðafoss. Óhætt er að fullyrða að þessar árlegu „heldrimannaferðir“ séu sívinsælar og algjörlega nauðsynlegar til að tryggja tengingu eldri félagsmanna við FIT og að sama skapi til að félagið geti leitað í þann reynslubrunn sem þar er að finna.

Á sama tíma og heldri félagar skipta FIT miklu máli, verður ekki hjá því litið að nýliðun skiptir ekki minna máli. Síðari hluta september fór afhending sveinsbréfa fram við hátíðlega athöfn á Hótel Hilton Nordica. Venju samkvæmt var vel mætt og fengu félagsmenn FIT sveinspróf í bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun, blikksmíði, húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulögnum og vélvirkjun. Flestir fengu sveinspróf í húsasmíði, eða 19 talsins. Fátt er ánægjulegra en að sjá áhuga ungs fólks á iðngreinum og ekki síður að upplifa jákvætt viðmót þeirra í garð greinanna og þeirra framtíðarmöguleika sem þar bíða. Framtíðin er sannarlega björt með þessa nýju félagsmenn innanborðs. Um leið og við óskum þeim til hamingju með áfangann, hlökkum við til samstarfsins með þeim um ókomin ár.

Mikilvæg könnun

FIT stóð fyrir rafrænni launakönnun undir lok síðasta mánaðar en það er félaginu gríðarlega mikilvægt að fá glögga og skýra mynd af launum félagsmanna, því framundan eru kjaraviðræður við atvinnurekendur og án þessara grunngagna verður baráttan fyrir bættum kjörum og hærri launum erfiðari.

Það er ljóst að laun í byggingageiranum hafa farið verulega fram úr launum í sumum öðrum greinum og nauðsynlegt að félagið hafi réttar launaupplýsingar svo hægt sé að sækja kjarabætur hjá þeim sem dregist hafa aftur úr. Þátttaka var góð og fyrir það er þakkað.

Hvar er fagmennskan eiginlega?

Stjórnmálamenn stæra sig gjarnan af háu menntunarstigi og fagmennsku á íslenskum vinnumarkaði en því miður virðist staðreyndin vera sú að alltof margir aðilar séu allt annað en faglegir. FIT hefur þannig mörg dæmi um stór verk þar sem ekki finnst einn einasti fagmenntaður iðnaðarmaður að störfum og vandasömum verkefnum úthlutað til ófaglærðra. Slíkt er óhæfa og með því stranga og viðamikla eftirliti sem til staðar er hér á landi ættu svona vinnubrögð að sjálfsögðu ekki að viðgangast.

Er nema von að spurt sé hvar fagmennskan sé eiginlega? Að sjálfsögðu á að gera gangskör að því að bæta úr þessu hið snarasta og það er hægt að fullyrða að fáir kaupendur yrðu væntanlega að íbúðum í stórhýsum ef þeir yrðu upplýstir um að fagmenntaðir iðnaðarmenn hefðu hvergi komið þar nærri. FIT mun berjast fyrir því að breyta þessu og koma fagmennskunni aftur í fyrsta sæti.

Kennitöluflakkarar á ferð og félagsleg undirboð

Flest bendir til að kennitöluflakk og svört atvinnustarfsemi sem erfitt er að aðgreina frá venjulegri brotastarfsemi blómstri á íslenskum vinnumarkaði. Það á ekki síst við í byggingaiðnaði en einnig víðar, til dæmis á sumum sviðum ferðaþjónustu. Enn fær það að viðgangast að einstaklingar, sem hafa orðið uppvísir að refsiverðri starfsemi í atvinnurekstri, setji félög í þrot, vísi launakröfum á Ábyrgðarsjóð launa, standi hvorki skil á gjöldum til verkalýðsfélaga né lífeyrissjóða, kaupi svo nýtt félag með nýrri kennitölu og byrji leikinn upp á nýtt. Nýja kennitalan er skömmu síðar komin með stórt verkefni á vegum verkkaupa, sem stundum er aðili á vegum ríkis eða sveitarfélags.

Nýja kennitalan er hluti af keðju sem hefur í þjónustu sinni erlendar starfsmannaleigur en þær spretta upp eins og gorkúlur á íslenskum vinnumarkaði um þessar mundir. Leigurnar flytja inn erlenda verkamenn sem eiga að fá lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði og fá sumir greidd þau laun en aðrir ekki. Þessir erlendu verkamenn vinna flest eða öll störf sem unnin eru við byggingu fjölmargra mannvirkja á Íslandi um þessar mundir, líka þau störf sem iðnaðarmenn með löggild starfsréttindi eiga að vinna samkvæmt lögum og samningum sem eiga að gilda á íslenskum vinnumarkaði.

Hilmar Harðarson, formaður FIT
Nóvember 2017