Laun hækka vegna hagvaxtarauka

Iðnaðarm og hallamal

Launataxtar munu hækka um 10.500 kr. og almenn laun um 7.875 kr. frá 1. apríl og koma til greiðslu 1. maí.

Forsendunefnd ASÍ og SA hefur ákveðið að hagvaxtaraukinn komi til greiðslu 1. maí líkt og kveðið er á um í samningum.

Landsframleiðsla jókst á mann um 2,53% á síðasta ári.

Þetta hefur þá þýðingu að hagvaxtarauki kjarasamninga hefur virkjast í fjórða þrepi.

Iðnaðarm og hallamal