Undirbúningur fyrir sveinspróf

Félag iðn- og tæknigreina minnir nemendur í hársnyrtiiðn á undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf, sem fram fara í febrúar og mars. Námskeiðið fyrir bóklega prófið og ýmis praktísk ráð verður haldið mánudaginn 6. febrúar kl. 18:00, Stórhöfða 31 gengið inn Grafarvogsmegin.

 

Athugið að á módeldegi þurfa nemendur að mæta með að lágmarki 3-4 módel til að æfa sig á. Þátttakendur raða sjálfir niður hvenær módelið mætir. Þátttakendur eru minntir á að koma með eigin blásara, bursta, greiður og mótunarefni sem á að nota í prófinu. Einnig er gott að biðja klippi-, lita- og skeggmódel um að kíkja við og fara yfir verklýsingar.

Boðið verður upp á veitingar á námskeiðinu.