Aðalfundur FIT var um helgina

Aðalfundur félagsins fór laugardaginn 18. mars klukkan 18:00. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf; reikningar félagsins voru afgreiddir og kjöri til stjórnar lýst, svo eitthvað sé nefnt.

Á fundinum gerði formaður félagsins upp síðasta ár en óhætt er að segja að spennandi en jafnframt krefjandi tímar séu fram undan hjá félaginu, sem stækkað hefur ört á undanförnum árum. Kjarasamningsviðræður verða áfram áberandi á árinu en einnig tæknilegar umbætur í starfi félagsins, svo dæmi séu tekin.