Kjarasamningur við ríkið (SNR) samþykktur

Aðildarfélög Samiðnar sem eiga aðild að kjarasamningi ríkisins (SNR) hafa samþykkt kjarasamning sem undirritaður var 4. maí sl. Atkvæðagreiðslu lauk í dag 16. maí.

Samningurinn felur í sér sambærilegar launahækkanir og þeir kjarasamningar sem undirritaðir hafa verið undanfarið.

Niðurstöður atkvæðagreiðslu:

Kosning vegna kjarasamnings við ríki (SNR) Nei Tóku ekki afstöðu Kjörsókn
Samiðn- samband iðnfélaga 78,6% 17,9% 3,6% 54,9%