Nýr kjarasamningur vegna starfsmanna Strætó bs.
Samninganefnd Samiðnar undirritaði kjarasamning í gær við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna starfsmanna Strætó bs. Um er að ræða langtímakjarasamninga til fjögurra ára með gildistíma frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Samningarnir fela í sér sambærilegar launahækkanir og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði sem undirritaðir voru í marsmánuði, auk markmiða og forsenda.
Kynning á kjarasamningnum verður haldin þriðjudaginn 3. desember nk. kl. 13:00. Í framhaldinu verða atkvæði greidd um samninginn.