Á sama vinnustaðnum í 35 ár

Björgvin Högnason húsasmiður starfar hjá Húsagerðinni í Reykjanesbæ

„Ég er búinn að vera hérna á sama stað frá því ég flutti heim frá Noregi árið 1989,“ segir Björgvin Högnason húsasmiður í samtali við Fréttabréf FIT. Björgvin, sem er 62 ára, starfar hjá fyrirtækinu Húsagerðin hf. í Reykjanesbæ.

Hann lauk stúdentsprófi á sínum tíma en flutti eftir það til Noregs og lagði stund á nám í tölvunarfræði. Björgvin flutti heim af fjölskylduástæðum árið 1989 og réði sig til Húsagerðarinnar. „Ég fór frekar seint í námið en ég kunni svo vel við mig í smíðunum að ég ákvað að fara í skólann. Ég tók námið í kvöldskóla í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og kláraði 1995.

Björgin segir að núna starfi sex manns hjá fyrirtækinu. Hann viðurkennir að gott hafi verið að starfa hjá fyrirtækinu í gegn um tíðina, enda verið á sama staðnum í 35 ár – þar af í ríflega 15 ár sem verkstjóri. „Ég er mjög ánægður hérna – annars væri ég farinn. Ég ætla ekki að verða sá fúli á vinnustaðnum,“ segir hann glaður í bragði.

Fyrirtækið starfar sem áður segir í Reykjanesbæ. „Við höfum mest verið að byggja og selja hús en inn á milli kemur viðhaldsvinna og annað slíkt. Þetta fer svolítið eftir ástandinu í þjóðfélaginu. Við höfum til dæmis ekki verið að byggja núna, enda er umhverfið mjög slæmt og erfitt að fá lóðir,“ segir Björgvin og bendir á að þau séu ekki mörg byggingafyrirtækin sem séu rekin á sömu kennitölunni frá árinu 1972, eða þar um bil.

Aðspurður segist Björgvin fylgjast nokkuð vel með félaginu og hann nýtir sér bæði orlofshús og styrki, eftir því sem við á. Hann er lítið farinn að huga að starfslokum, þó hann sé á sjötugsaldri. „Heilsan er fín eins og er, og á meðan það helst svoleiðis þá heldur maður áfram. Ég verð að minnsta kosti starfandi nokkur ár í viðbót,“ segir hann að lokum.

Viðtalið birtist fyrst í Fréttabréfi FIT, desember 2024