Kosningar í embætti hjá Félagi iðn- og tæknigreina

Í 17. gr. laga félagsins segir um kosningar í embætti:
Fyrir 1. febrúar ár hvert skal stjórn félagsins gera tillögu um uppstillingarnefnd sem starfar milli aðalfunda. Fyrir aðalfund ár hvert skal kjósa hluta stjórnar. Kosningu skal skipt milli ára þannig að annað árið sé kosinn formaður, sex meðstjórnendur og tveir varamenn en hitt árið sjö meðstjórnendur og þrír varamenn.
Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum, samkvæmt ákvæðum 16. greinar.

Á aðalfundi skal árlega kjósa uppstillinganefnd, tvo skoðunarmenn reikninga, helming trúnaðarráðs og fulltrúa í fulltrúaráð lífeyrissjóða sem FIT á aðild að. Auk þess skal kjósa fulltrúa á þing ASÍ og Samiðnar þau ár sem þau eru haldin.
Uppstillinganefnd skal skila tillögum að framboðum í stjórn, nefndir og fulltrúaráð ár hvert og þing Samiðnar og ASÍ þau ár sem þau eru haldin, og skal stjórn fyrir 1. febrúar kynna framkomnar tillögur á heimasíðu félagsins og í rafrænu fréttabréfi.

Félagsmenn geta boðið sig fram til formanns eða stjórnar hafi þeir aflað sér undirskrifta 30 félagsmanna FIT sem meðmælenda og skilað framboði fyrir 15. febrúar. Hver félagsmaður getur einungis mælt með einum frambjóðanda í hvert embætti. Komi aðeins ein tillaga fram er stjórnin sjálfkjörin, en ef fleiri tillögur koma fram skal viðhöfð póstatkvæðagreiðsla eða rafræn kosning.

Um kosningu í trúnaðarráð og samninganefnd segir í 20. grein félagslaganna:
Trúnaðarráð skal starfa í félaginu. Trúnaðarráð gegnir hlutverki samninganefndar við gerð kjarasamninga.
Í trúnaðarráði skulu eiga sæti, auk félagsstjórnar, 37 félagsmenn og 37 til vara, sem kjörnir eru á sama hátt og félagsstjórn. Skulu þeir númeraðir frá 1 – 74 og kjörnir þeir sem hafa oddatölu annað árið og jafna tölu hitt árið. Þeir skulu endurspegla sem flestar starfsgreinar og svæði félagsins. Auk þess eiga trúnaðarmenn félagsins á
vinnustöðum sæti í ráðinu sem og þeir aðrir sem kjörnir eru til trúnaðarstarfa fyrir félagið.

21.grein laganna fjallar um kjörstjórn og er eftirfarandi:
Kjörstjórn skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um atkvæðagreiðslur um kjarasamninga, verkföll og allsherjaratkvæðagreiðslur samkvæmt lögum félagsins.
Tveir kjörstjórnarmenn og tveir til vara skulu kjörnir á sama hátt og stjórn. Vegna atkvæðagreiðslna um kjarasamninga og verkföll skipar samninganefnd þriðja kjörstjórnarmanninn og skal hann vera formaður kjörstjórnar.
Við aðrar allsherjaratkvæðagreiðslur skipar miðstjórn ASÍ þriðja kjörstjórnarmanninn og skal hann vera formaður kjörstjórnar.

Hér fyrir neðan má sjá tillögur uppstillingarnefndar