Umsóknartímabil fyrir orlofshús hefst 17. febrúar

Opnað verður fyrir umsóknir, mánudaginn 17. febrúar, á orlofsbústöðum FIT fyrir sumarið 2025.

Umsóknir fara aðeins fram á orlofsvefnum. Þetta gildir fyrir alla orlofskosti sem sækja þarf um. Ef umsóknin vefst fyrir fólki má senda tölvupóst á fit@fit.is.

Ekki er tekið við umsóknum í síma. Þegar sótt er um rafrænt þarf að innskrá sig með rafrænum skilríkum og velja viðeigandi mánuð og tímabil í því húsi sem leigja á. Félagsfólk er hvatt til að sækja um sem flesta orlofskosti til að auka möguleika sína.

Mikilvægar dagsetningar

  • Mánudaginn 17. febrúar er opnað fyrir umsóknir á orlofshúsasíðu FIT þar sem hægt er að sækja um sumarúthlutun.
  • Mánudaginn 24. febrúar klukkan 13:00 er lokað fyrir umsóknir um sumarúthlutun.
  • Miðvikudaginn 26. febrúar eiga allir að hafa fengið svar við orlofsumsókn sinni.
  • Mánudaginn 10. mars lýkur greiðslufresti þeirra sem hafa fengið úthlutað.
  • Þriðjudaginn 11. mars klukkan 13:00 eru ógreiddar og óúthlutaðar vikur settar á orlofsvefinn og þá gildir „fyrstir kemur fyrstir fær“.

Leigutímabil er ávallt frá kl. 16:00 á föstudegi til kl. 12:00 næsta föstudags.

Sumarleiga orlofshúsa innanlands hefst föstudaginn 6. júní og lýkur 22. ágúst.