Hárgreiðslan leiðandi í nýsköpun á sviði vinnuverndar
Lokaráðstefna sameiginlegs verkefnis UNI Europa og Coiffure EU, sem hlaut styrk frá Evrópusambandinu, fór fram dagana 16.–18. júní 2025. Fulltrúi FIT var á meðal þátttakenda.
Á ráðstefnunni var stigið mikilvægt skref í átt að bættri vinnuvernd í hársnyrtigreinum, sem er ein af sundurleitustu þjónustugreinum álfunnar. Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar atvinnurekenda og stéttarfélaga víðs vegar að úr Evrópu, auk sérfræðinga á sviði vinnuverndar, hringrásarhagkerfis, vinnusálfræði og hagfræði. Sameiginlegt markmið þeirra var að leggja mat á þann árangur sem þegar hefur náðst, ræða næstu skref og tryggja að starfsskilyrði fólks í hársnyrtiiðn verði bæði örugg og sjálfbær.
Starf starfsfólks í hársnyrtiiðn, sem að stórum hluta eru ungar konur í litlum eða mjög litlum fyrirtækjum, felur í sér daglega áhættu vegna mikillar snertingar við efni sem geta verið skaðleg, ófullnægjandi loftræstingar og stöðugrar líkamlegrar álagsvinnu. Síðustu tíu ár hafa UNI Europa og Coiffure EU leitt innleiðingu rammasamnings sem Evrópusambandið hefur stutt.
Verkefnið fólst í gerð ítarlegrar aðgerðaáætlunar sem inniheldur leiðbeiningar um vinnuvernd fyrir lítil fyrirtæki, sértæka vinnuvistfræðilega staðla og leiðbeiningar um notkun persónuhlífa. Þar má nefna efnaþolna hanska sem nú hafa verið skilgreindir sem hluti af flokki III í regluverki ESB um hlífðarbúnað.
Á ráðstefnunni voru kynntar áhugaverðar og mikilvægar rannsóknar á starfsumhverfi starfsfólks í hársnyrtigreinum. Þar kom meðal annars fram að hættan af snertingu starfsfólks við skaðleg efni er stórlega vanmetin. Byggt á þeim gögnum hafa aðilarnir lagt fram nýjar tillögur til vísindaráðs Evrópusambandsins um neytendavernd (SCCS). Þá hefur verið þróaður sérstakur staðall fyrir verndarhanska í hárgreiðslu sem nú bíður samþykkis á bæði evrópskum (CEN) og alþjóðlegum (ISO) vettvangi.
Á ráðstefnunni hrósaði Oliver Roethig, svæðisstjóri UNI Europa, samstarfinu og sagði að enginn vinnustaður væri of smár til að tryggja vernd starfsfólks og engin vinna of ómerkileg til að gæta fyllsta öryggis.
Fram undan bíða mikilvæg verkefni þar sem Evrópusambandið stendur frammi fyrir grænum umbreytingum á ýmsum sviðum, stafrænum breytingum vegna tækniframfara og ýmsum öðrum áskorunum. Samhliða eykst þörfin fyrir að bregðast við andlegum álagsþáttum og fyrirséðum skorti á vinnuafli.




