Góð þátttaka í ferð heldri félaga

Félag iðn- og tæknigreina fór í sína árlegu ferð með „heldri félagsmenn“ föstudaginn 12. september. Þátttaka félagsmanna í ferðinni var mjög góð. Félagsmenn frá höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Vesturlandi og Suðurnesjum fóru í þessa ferð.

Félagar frá Akranesi og Árborg voru sóttir klukkan 08:00 og síðan farið á tveim rútum frá Árbæjarsafni klukkan 09:00. Að þessu sinni var ákveðið að heimsækja Reykjanesið.

Eftir að félagar okkar af Reykjanesinu voru teknir upp við Krossmóa var farið í Duus-hús í Reykjanesbæ en þar tók á móti okkur Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi. Þar var boðið upp á ýmsar sýningar. Fyrst skal nefna áhugaverða sýningu um Ástu málara sem FIT hafði styrkt með myndarlegu fjárframlagi. Ásta kláraði sveinspróf í málariðn í Danmörku árið 1907 og iðnmeistarapróf 1909 í Þýskalandi. Þar var einnig einkasýning Áka Guðna Gränz. Áki hefði orðið 100 ára á þessu ári og mun sýningin heiðra minningu listamannsins. Áki var afkastamikill listamaður og einnig málarameistari. Hann hannaði m.a. merki Iðnaðarmannafélags Suðurnesja. Það voru þarna síðan fjöldi annarra sýninga til að skoða. Frá Duus-húsum var síðan haldið að brúnni milli heimsálfa.

Menn kættust síðan þegar fyrsta „altarisganga“ ferðarinnar var farin við brúna milli heimsálfa í blíðskaparveðri. Eftir heimsóknina var haldið af stað til Grindavíkur þar sem hádegismatur var snæddur á veitingastaðnum Brúnni. Þar ræður ríkjum Ólafur Arnberg Þórðarson skipstjóri. Fyrst var boðið upp á fordrykk og samkvæmt ófrávíkjanlegri venju var sunnudagslambalæri með öllu og síðan eftirréttur og kaffi á eftir. Menn voru mjög ánægðir með veitingarnar. Kristín María Birgisdóttir leiðsögumaður fræddi okkur um hrinu eldgosa við Grindavík og áhrif þeirra á bæinn. Erindi Kristínar Maríu var mjög áhugavert og hún var síðan með leiðsögn um bæinn.

Að lokinni heimsókn var haldið áleiðis í Northern Light Inn þar sem kaffiveitingar biðu hópsins. Þar gafst mönnum einnig tími til að ræða málin og segja sögur. Þar var mikið sungið með undirspili harmonikkuleiks Boga Sigurðssonar.

Það sem einkennir þessar ferðir er mikil glaðværð og kátína meðal manna og allir gífurlega ánægðir í ferðalok sem var um kvöldmatarleytið.

Fararstjórar voru Gunnar Halldór Gunnarsson, Hilmar Harðarson, formaður FIT og Rúnar Hreinsson ljósmyndari.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar svipmyndir úr ferðinni.