Kaffi fyrir eldri félaga 10. des.

Félagsfólki á lífeyrisaldri er boðið til kaffisamsætis miðvikudaginn 10. desember nk. Kaffiboðin, sem haldin eru með Fagfélögunum, eru annan miðvikudag í mánuði yfir vetrartímann.

Kaffiboðið er haldið á Stórhöfða 29-31 en athugið að gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin.

Boðið stendur yfir milli klukkan 13 og 15.