Dagatal 2026 er komið út – myndir og fróðleikur
Dagatal FIT fyrir árið 2026 er komið út. Að þessu sinni hefur mikil vinna verið lögð í vinnslu dagatalsins. Rúnar Hreinsson ljósmyndari, Gunnar Halldór Gunnarsson, starfsmaður félagsins, og Jóhann B. Jóhannsson bifreiðasmiður hafa í samstarfi við Árbæjarsafn tekið saman upplýsingar og myndað gömul tæki og tól sem notuð voru á árum áður við flestar þær iðngreinar sem félagsmenn FIT ástunda.
Afraksturinn er glæsilegur, eins og myndirnar bera með sér og dagatalið er prýði á hvaða skrifborði sem er.
Hægt er að nálgast dagatalið á skrifstofum félagsins eða með því að senda póst á fit@fit.is.





