Laun hækkuðu um áramótin
Samkvæmt kjarasamningi hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um áramótin um 3,5% eða 23.750 krónur að lágmarki. Um er að ræða hækkun mánaðarlauna fyrir dagvinnu.
Félagsfólk er hvatt til að fylgjast með því að þessar launahækkanir skili sér í launaumslagið. Þeir sem eru á fyrirframgreiddum launum ættu að hafa fengið hækkunina um nýliðin mánaðamót.
Ekki hika við að hafa samband við félagið ef á þarf að halda. Síminn er 535 6000 og netfangið fit@fit.is.




