„Hef alltaf haft mikinn áhuga á bílum“

Viðtal við bifvélavirkjann og trúnaðarmanninn Hafstein Grímsson

Hafsteinn Grímsson er trúnaðarmaður starfsmanna hjá BL og starfar í Hyundai-deildinni í Kauptúni. Þar starfar um tugur bifvélavirkja. Hafsteinn hefur verið hjá BL í sex ár og fæst við almennar bílaviðgerðir.

Hann fékk sveinsbréf í bifvélavirkjun árið 2023 en hefur verið í fullu starfi hjá fyrirtækinu frá árinu 2020. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á bílum, alveg frá því ég var krakki. Það hefur smám saman vaxið með tímanum,“ segir Hafsteinn um bílaáhugann.

Hafsteinn er fæddur 2001 og er úr Reykjavík. Hann ákvað að halda áfram að læra og er að ljúka meistaranámi í bifvélavirkjun í vetur. Hann segir að meistaranámið sé ekki svo þungt en að tíma þurfi til að sinna þeim verkefnum, samhliða annarri vinnu. „Þetta er ekki beint erfitt en maður þarf að skipuleggja sig vel,“ segir hann.

Eins og áður segir sinnir Hafsteinn almennum bílaviðgerðum, ýmist á bílum sem knúðir eru með jarðefnaeldsneyti eða rafbílum. Hann segir aðspurður að þrátt fyrir að orkugjafinn sé ólíkur sé flest annað í þessum bílum sambærilegt, þegar að viðgerðum kemur. Fjöðrun, bremsur og drifbúnaður sé að megninu til svipaður.

Hefur verið voðalega ljúft

Hafsteinn var kosinn trúnaðarmaður starfsmanna í sumar en þá hafði ekki verið trúnaðarmaður á vinnustaðnum um hríð. Hann lauk á þessu ári sjötta og síðasta hluta trúnaðarmannafræðslunnar.

Hafsteinn segir fræðsluna hafa verið upplýsandi en snúi mikið að því hvaða möguleikar séu fyrir hendi þegar einhver mál komi upp sem þurfi að leysa. Hann segist vera svo heppinn að vinnustaðurinn er góður. Engin þung mál hafi komið á hans borð, enn sem komið er.

Hlutverk trúnaðarmanns snýst að nokkru leyti um að vera milliliður á milli félagsins og vinnustaðarins að sögn Hafsteins. Hann segist fylgjast vel með nemunum á vinnustaðnum og leiðbeini þeim þegar kemur að launamálum og öðru slíku, eftir því sem þörf krefur „Þetta hefur verið voðalega ljúft – hér hefur ekki verið neitt vesen.“

Viðtalið birtist fyrst í Fréttabréfi FIT, í desember 2025.