Skráning á sveinsprófsnámskeið í hársnyrtiiðn hafin
Opnað hefur verið fyrir skráningu á sveinsprófsnámskeið í hársnyrtiiðn. Námskeiðið verður haldið dagana 4.-14. febrúar. Skráningarfrestur er til 3. febrúar en skráningargjaldið er 5.000 krónur. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þennan undirbúning.
Andri Guðmundsson á Klipphúsinu hefur umsjón með námskeiðinu en hann kennir stutta línu, skegg og verklýsingar. Hafdís Grétarsdóttir kennir bóklegan undirbúning og verklýsingar. Lena Magnúsdóttir kennir síða línu og verklýsingar. Linda Dögg Kjartansdóttir kennir litun og Eyvindur Þorgilsson kennir uppgreiðslu og permanent. Steinunn Ýr Randversdóttir kennii blástur og permanent.
Athugið að bóklega kennslan fer fram á Stórhöfða 31 en gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin. Verklegu tímarnir eru kenndir í Hárakademíunni, Kringlunni 7.
Mikilvægt er fyrir nemendur að huga tímanlega að módelum og koma með þau módel á námskeiðið sem þau hyggjast nota, svo hægt sé að leiðbeina.
Á laugardeginum er opinn tími þar sem nemendur geta fengið aðstoð við þá þætti sem þeim finnst þau helst þurfa að vinna í.
Skráning fer fram hér.





