Fréttabréf FIT komið út
Fréttabréf FIT er komið út. Í blaðinu er sérstök áhersla á fræðslumál. Ítarlega umfjöllun er þar að finna um Iðuna fræðslusetur og Nemastofu atvinnulífsins.
Í fréttabréfinu eru niðurstöður orlofskönnunar birtar, formaður félagsins ritar pistil og ýmiskonar umfjöllun er þar um orlofstengd málefni. Loks eru þar birtar upplýsingar um tillögur uppstillingarnefndar vegna kosninga í embætti félagsins á komandi aðalfundi.





