Spennandi námskeið á sviði bílgreina

Þann 7. febrúar næstkomandi fer fram grunnnámskeið hjá Iðunni fræðslusetri sem ber heitir SDU DETAIL. Um er að ræða námskeið fyrir þá sem vilja læra grunnhandtök þegar kemur að því að láta lakk á bíl líta út eins og nýtt.

Markmiðið er að veita þátttakendum grunnþjálfun þegar kemur að því helsta í umhyrðu lakks og þrifum á ytri og innri rýmum bílsins. Námskeiðið er því að mestu verklegt.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Val á efnum, vélum og tækjum. Deatilng Chart / röð efna
  • Rétt tækni við þvott á bíl (2 fötu tækni)
  • Þrif á felgum og dekkjum – Dressing á hjólbarða.
  • Notkun á froðusprautu
  • Notkun og val á leir/leirhanska (hvernig á að leira og hvers vegna)
  • Notkun á Hjámiðju mössunarvélum, frágangur fyrir mössun
  • Val á mössum
  • Hvernig á að bera wax á Liquid/paste með höndum og vél
  • Rétt notkun á microfiber klútum
  • Þrif á innréttingum, notkun á djúphreinsivélum. Rétt efni fyrir ólík yfirborð
  • Þrif á gleri
  • Þrif á vélasal

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Getað þvegið bíl með réttri tækni (2 fötu tækni)
  • Getað notað leir til að hreinsa óhreinindi af lakki
  • Getað notað hjámiðjumössunarvél
  • Þekki mismunandi massa
  • Þekki meðhöndlun á gleryfirborði
  • Geti þrifið vélarsal

Félagsmenn fá námskeiðið á niðurgreiddi verði og greiða aðeins 7.450 krónur. Fullt verð er 29.800 kr. Námskeiðið er kennt á Bíldshöfða 16 og hefst klukkan 07:45 þann 7. febrúar. Þórir Jökull Helgason kennir námskeiðið.