Miklar endurbætur í Fljótshlíð
Smiðir á vegum FIT vinna þessa dagana að gagngerum endurbótum á orlofshúsi félagsins í Fljótshlíð. Óhætt er að segja að verið sé að taka húsið í nefið að innan, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Hilmar Harðarson formaður og Rúnar Hreinsson ljósmyndari kíktu við í Fljótshlíðinni fyrir fáeinum dögum og fylgdust með framgangi verksins. Húsið verður tilbúið til útleigu fyrir sumarúthlun, hið minnsta.
- default
- default













