Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið
Í dag lýkur tveggja daga námskeiði á vegum Samiðnar fyrir trúnaðarmenn. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, sem ljósmyndari félagsins tók í gær, var góð mæting á námskeiðið og andinn sömuleiðis góður.
Við minnum á að félagsmenn eiga rétt á að halda launum frá launagreiðanda á meðan námskeið sem þetta fer fram.
Við hvetjum einnig félagsmenn á vinnustöðum til að kjósa trúnaðarmann. Allar upplýsingar um vinnustaði þar sem enginn trúnaðarmaður er starfandi eru vel þegnar. Fyrirspurnir má senda á fit@fit.is.
Nýjar myndir eru í myndasafni FIT.




