Aðalfundur FIT fór fram um helgina
Aðalfundur FIT fór fram um helgina, laugardaginn 21. mars 2026. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf. Hilmar Harðarson formaður kynnti skýrslu stjórnar og fór yfir viðburðarríkt ár í máli og myndum.
Á fundinum var kjörið í stjórn, nefndir og önnur hlutverk og endurskoðandi félagsins kynnti ársreikning fyrir síðasta ár. Boðið var upp á veglegar veitingar, venju samkvæmt.
Vel var mætt til fundarins en myndir frá fundinum má skoða í myndasafni FIT.






