Hallskot tilbúið til útleigu
Eftir miklar endurbætur er Hallskot í Fljótshlíð nú reiðubúið til útleigu til félagsmanna.
Við byrjum á að leigja það núna um páskana, fyrstur kemur fyrstur fær, síðan verðum við með bústaðinn í venjulegri helgar – og dagleigu.
Opnað verður fyrir bókanir miðvikudaginn 1. apríl klukkan 16:00.
ATH: Athygli er vakin á því að mikill snjór er á svæðinu um þessar mundir og er mælt með að ekið sé á aldrifsbílum að bústaðnum í aprílmánuði. Yfirleitt er mokað á föstudögum og mánudögum en engu að síður getur verið illfært á svæðinu.
Sjá einnig: Miklar endurbætur í Fljótshlíð




