Endurmenntun félagsmanna FIT
– Iðan fræðslusetur og Landbúnaðarháskóli Íslands annast faglega endurmenntun.
Atvinnurekendur greiða frá 1. júní 2008 prósentugjald af launum iðnaðarmanna í endurmenntunarsjóð. Öll endurmenntunargjöld fara til Iðunnar-fræðsluseturs til reksturs á Iðunni.
Prósentutalan er 0,5% í öllum greinum nema bílgreinum þar er 0,8% og garðyrkjugreinum en endurmenntun í þeirri grein er hjá Landbúnaðarháskólanum.
Menntasjóður FIT veitir ekki styrki til námskeiða í Iðunni þar sem þau eru þegar niðurgreidd með endurmenntunargjöldunum.
Smellið hér til að skoða bækling FIT um nám í framhaldsskóla
Iðan fræðslusetur
Býður upp á breytt úrval af námskeiðum fyrir byggingagreinar-, málm og véltæknigreinar-, snyrtigreinar, matvæla- og veitingagreinar, bílgreinar, fjölmiðla og upplýsingatækni, ásamt fleiri iðngreinum. Iðan vinnur í umboði menntamálaráðuneytisins með sveinspróf og umsýslu með námssamningum.
Landbúnaðarháskóli Íslands
Skólinn er vísindaleg fræðslu- og rannsóknastofnun á háskólastigi auk þess sem þar er boðið upp á starfsmenntanám í búfræði og garðyrkjutengdum greinum auk endurmenntunar.
Mímir símenntun
Mímir-símenntun leggur áherslu á að skipuleggja markvissa fræðslu fyrir fólk á vinnumarkaði sem minnstu menntunina hefur. Í flestum tilfellum er fræðslustarfið skipulagt í samstarfi við stéttarfélög, fræðslusjóði eða fyrirtæki. Býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða sem geta nýst í starfi og/eða tómstundum. Má þar nefna breytt úrval af tungumálanámskeiðum sem er í boði. Þeir bjóða einnig upp á náms- og starfsráðgjöf fyrir fólk á vinnumarkaði. Ráðgjöfin er þátttakendum að kosnaðarlausu og fyrst og fremst ætluð fólki á vinnumarkaði með stutta skólagöngu.
Menntasjóður FIT veitir félagsmönnum styrk vegna námskeiða á vegum Mímis sem ekki eru styrkt af öðrum aðilum