Nýr kjarasamningur við Samband garðyrkjubænda | |
Í dag var undirritaður nýr kjarasamningar við Samband garðyrkjubænda sem er á svipuðum nótum og aðrir almennir kjarasamningar sem undirritaðir hafa verið af Samiðn fyrir hönd aðildarfélaga. Samningurinn er nú í kynningarferli og verða greidd um hann atkvæði í póstatkvæðagreiðslu og munu kjörgögn berast félagsmönnum í byrjun næstu viku en kosningu á að vera lokið eigi síðar en 10. mars. |