Íslandsmóti iðngreina lokið |
- Iðnaðarmenn framtíðarinnar verðlaunaðir |
Verðlaunin afhenti Árni Már Heimisson, sem var Íslandsmeistari og Norðurlandameistari í pípulögnum 2007 og tók þátt í World Skills 2007, Heimsmóti iðngreina, í Japan fyrir Íslands hönd, fyrstur Íslendinga til að taka þátt í því móti. Markmið Íslandsmóts iðngreina, sem Iðnmennt stendur fyrir, er að vekja athygli á iðn- og starfsmenntun, kynna almenningi iðngreinar - ekki síst ungu fólki - og vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í námi og starfi í iðngreinum. Alls voru á mótinu fulltrúar um 20 iðn- og starfsgreina, en auk greinanna sem keppt var í voru kynningar á nokkrum greinum, auk þess sem iðn- og verkmenntaskólar landsins og Samband íslenskra framhaldsskólanema kynntu starfsemi sína. Íslandsmót iðngreina er undanfari og forkeppni einstakra keppnisgreina fyrir þátttöku í Euro Skills og World Skills sem er alþjóðleg keppni iðngreina. Meira var lagt í keppnisgreinarnar nú en áður og viðfangsefnin í flestum tilvikum veigameiri og meira krefjandi. Markmiðið með breyttu fyrirkomulagi er m.a. að auka þátttöku atvinnulífsins í mótinu og efla tengslin milli þess og iðnskólanna. Líkt og undanfarin ár sá Iðnmennt um almennan undirbúning og skipulagningu mótsins en að þessu sinni sáu AP almannatengsl um kynningarmál og framkvæmd viðburðarins. Að skipulagningu keppnisgreina komu Félag hársnyrtisveina, Félag íslenskra snyrtifræðinga, Félag pípulagningameistara, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsamband Íslands og IÐAN - fræðslusetur. Aðalbakhjarlar mótsins voru Samtök iðnaðarins og menntamálaráðuneytið. Mótið í ár var haldið í tengslum við sýninguna Verk og vit 2008.
|