Farið verður þann 20. september 2008 í árlegt ferðalag Félags iðn- og tæknigreina fyrir félagsmenn sem náð hafa 66 ára aldri eða verða 66 ára á árinu. Lagt verður af stað frá Borgartúni 30 kl. 11:00 stundvíslega. Fararstjóri verður að venju okkar ágæti Finnbogi Eyjólfsson og hann einn veit hvert farið verður.
Fyrir þá sem eru að fá boð um að fara í fyrsta sinn skal upplýst að ferðirnar eru að kostnaðarlausu.
Félag iðn- og tæknigreina mun bjóða til hádegisverðar á leiðinni og í síðdegiskaffi. Gert er ráð fyrir að vera komin í Borgartún um kl. 18:00.
Skráning er á skrifstofum félagsins eða í síma 535 6000 fyrir 17. september 2008.
|