Út í bláinn ferð n.k. sunnudag | |
Ferðahópurinn „Út í bláinn" fer í sína fyrstu ferð n.k. sunnudag 25. janúar. Lagt verður af stað með rútu kl. 13 frá Borgartúni 30 og stímað út í bláinn. Að vanda verður áfangastaður ekki gefinn upp en reiknað er með heimkomu um kvöldmatarleytið. „Út í bláinn" er ferðahópur FIT og Fagfélagsins og eru félagsmenn og fjölskyldur þeirra hvattir til að nýta sér ferðirnar sem eru þátttakendum að kostnaðarlausu - einungis þarf að koma með góða skapið og ævintýraþrána. Miðað er við að næstu ferðir verði ávallt síðasta sunnudag mánaðarins fram til maí. Frekari upplýsingar fást á skrifstofunni í síma 535-6000. |