Umsókn um orlofsdvöl á Spáni eða ferðatilboð sumarið 2009 | |
Hægt er að fylla umsóknina út og senda hana sem viðhengi í tölvupósti, með faxi eða pósti. Hér má nálgast umsóknina. Verð fyrir íbúðina í Torrevieja er kr. 55.000 (lokaþrif innif.) FERÐATILBOÐ SUMARFERÐA, PLÚSFERÐA EÐA ÚRVALS-ÚTSÝNAR Að þessu sinni er boðið upp á 30 tilboðsferðir að eigin vali til einhvers af áfangastöðum Sumarferða, Plúsferða eða Úrvals-Útsýnar. Félagsmenn sækja um til félagsins og þeir sem fá úthlutað þurfa að greiða kr.5.000 fyrir staðfestingu á afslætti uppá kr. 35.000 Viðkomandi fær úthlutað afsláttarnúmeri sem hann í framhaldinu getur framvísað hjá ofangreindum ferðaskrifstofum eða notað beint á vef viðkomandi ferðaskrifstofu og nýtt sér þannig afsláttinn. Ferðatilboðið gildir í allar pakkaferðir ofangreindra ferðaskrifstofa á tímabilinu frá maí til loka september 2009. Athugið að skilafrestur er til 10.febrúar. |