Auglýsing um sveinspróf | |
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst: Í byggingagreinum, upplýsinga- og fjölmiðlagreinum í maí - júní, umsóknarfrestur til 1. apríl. Sveinspróf málmiðngreinum (nema vélvirkjun), bíliðngreinum, snyrtigreinum, kjólasaumi, klæðskurði o. fl. iðngreinum verða haldin í maí - júní. Umsóknarfrestur er til 1. maí. Sveinspróf í vélvirkjun verður í október 2009, umsóknarfrestur er til 1. júní nk. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2009. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum. Umsóknareyðublöð má nálgast hjá Iðunni á heimasíðunni þeirra og á skrifstofu Iðunnar.
|