
Um 160 nemar fengu afhent sveinsbréf á sameiginlegri sveinsbréfaafhendingu sveina- og meistarafélaga í bíl-, bygginga-, málm- og véltæknigreinum sem haldin var á Grand hótel föstudaginn 18. september 2009. Flestir luku sveinsprófi í húsasmíði eða 84 talsins. Auk þess voru 15 pípulagningamenn, 10 múrarar, 23 málarar, 9 bifvélavirkjar, 7 bifreiðasmiðir, 4 bílamálarar og 7 vélvirkjar útskrifaðir.

Í setningarræðu sinni fjallaði Hilmar Harðarson, formaður Félags iðn- og tæknigreina, um hversu þýðingarmikil iðn- og tæknimenntun sé fyrir samfélagið. " Því er ánægjulegt er að sjá hversu margir eru að útskrifast í þessum mikilvægu starfsgreinum og er það nokkur fjölgun frá fyrra ári". Hilmar telur jafnframt að auka þurfi vægi iðn- og tæknigreina í skólakerfinu. "Mikil þörf mun verða á slíkri þekkingu á næstu árum, t.d. við uppbyggingu sprotafyrirtækja".
Umfjöllun um útskriftina var á mbl.is, eyjan.is og pressan.is.
Sjá myndir hér
| |