Ýmis námskeið eru í boði hjá Sumarhúsið og garðurinn í "garðyrkju og garðhönnun" og "arkitektúr og skipulagi" á vorönn 2010. Kennsla fer fram í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Mánudaginn 25. janúar hefjast fyrstu námskeiðin með nýju og spennandi námskeiði sem nefnist "Sumarhús frá draumi til veruleika" og hinu sívinsæla "Matjurtanámskeiði". Námskeiðin eru frá kl. 19:00 - 21:30 tvö mánudagskvöld, hið síðara er 1. febrúar. Einnig er boðið upp á námskeiðið Handbók húsbyggjandans 8. og 15. febrúar kl 19-21:30 og námskeið um Kryddjurtaræktun á undan matjurtunum þann 1. febrúar kl. 17:00 - 18:30. Félagsmenn FIT eiga rétt á styrki úr menntasjóði samkvæmt reglum sjóðsins. Nánari upplýsingar og skráning á www.rit.is
Næstu dagsetningar: • Matjurtaræktun - tvö mánudagskv. 25/1 og 1/2 kl. 19-21:30 • Sumarhús frá draumi til veruleika - mánudagskv. 25/1 og 1/2 kl. 19-21:30 • Ræktun ávaxtatrjáa - tvö miðvikudagskv. 27/1 og 3/2 kl. 19-21:30. • Skipulag og ræktun í sumarhúsalandinu - miðv. 27/1 og 3/2 kl. 19-21:30 • Einn, tveir og tré! - miðvikudag 27/1 kl. 17-18:30 • Kryddjurtir - mánudag 1/2 kl. 17-18:30 • Ræktun berjarunna - miðvikudag 3/2 kl. 17-18:30 • Skjólmyndun í görðum - miðvikudag 3/2 kl. 17-18:30 • Handbók húsbyggjandans - tvö miðvikudagskvöld, 8 og 15/2 kl. 19-21:30 • Umhverfi og skipulag - þrjú miðvikudagskvöld 10, 17 og 24/2 kl. 19-21:30 • Klipping trjáa og runna - miðvikudagskvöld 24/2 kl. 19-21:30 • Maður og umhverfi - mánudagskvöld 15/3 kl. 19-21:30
Leiðbeinendur á námskeiðunum eru: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur, Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur, Hlédís Sveinsdóttir arkítekt, Gunnar Bergmann Stefánsson arkítekt, Björn Jóhannsson landslagsarkítekt og Páll Jakob Líndal doktorsnemi í umhverfissálfræði. Skráning og nánari upplýsingar í síma 578 4800 eða á http://www.rit.is/ Merkurlaut ehf Hamrahlíð 31 105 Reykjavík
|