Vegna fyrirhugaðrar sameingar Félags iðn- og tæknigreina (FIT) og Félags tækniteiknara (FTT) er boðað til tveggja félagsfunda í FIT til að afgreiða tillögu um sameiningu við FTT og lagabreytingar sem slík sameining kallar á.
Boðað er til félagsfundar þriðjudaginn 29. júní kl. 18:30 í Borgartúni 30, 6. hæð.
Dagskrá: 1. Tillaga um sameiningu FIT og FTT. Fyrri umræða. 2. Lagabreytingar, fyrri umræða: 3. grein, um félagsmenn, skilgreiningu og skilyrði aðildar 20. grein, um trúnaðarráð Bráðabirgða ákvæði vegna sameiningar við FTT
Stjórn FIT
Boðað er til félagsfundar þriðjudaginn 29. júní kl. 19:30 í Borgartúni 30, 6. hæð.
Dagskrá: 1. Tillaga um sameiningu FIT og FTT. Síðari umræða. 2. Lagabreytingar, síðari umræða: 3. grein, um félagsmenn, skilgreiningu og skilyrði aðildar 20. grein, um trúnaðarráð Bráðabirgða ákvæði vegna sameiningar við FTT 3. Önnur mál
Stjórn FIT
Vakin er athygli á að fundirnir eru báðir sama daginn og boðið verður uppá pizzur og gosdrykki á milli funda. |