Félag iðn- og tæknigreina styrkir Jólaaðstoð Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands | |
![]() Félag iðn- og tæknigreina styrkir Jólaaðstoð Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands um þessi jól í stað þess að senda jólakort. Jólaaðstoð Reykjavíkurdeildar er veitt í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Hjálpræðisherinn. Þetta er í fimmta sinn sem félagasamtökum er veittur fjárstuðningur í stað þess að senda jólakort en um síðustu jól hlaut Rauði kross Íslands stuðning. |