Orlofsuppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05.-30.04), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30.04. eða eru í starfi 01.05. Orlofsuppbótin er: kr. 27.800 fyrir árið 2012. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir. Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót. Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Sjá útreikning orlofsuppbótar. |