Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar og febrúar ef næg þátttaka fæst: Í húsasmíði og pípulögnum í desember. Sveinspróf í málaraiðn í janúar. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Í málmiðngreinum í janúar. Umsóknarfrestur til 1. desember. Í snyrtigreinum í janúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember. Í bílgreinum í janúar/febrúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember. Í hönnunar- og handverksgreinum í janúar/febrúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2011. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum. Sjá nánar hér. |