Önnur ferð ferðahóps FIT og Fagfélagsins "Út í bláinn" í ár verður farin sunnudaginn 26. febrúar. Lagt verður af stað kl. 13 frá Borgartúni 30 og er áætluð heimkoma kl. 16. Ferðin er félagsmönnum að kostnaðarlausu. „Út í bláinn" er ferðahópur FIT og Fagfélagsins og eru félagsmenn og fjölskyldur þeirra hvattir til að nýta sér ferðirnar sem eru þátttakendum að kostnaðarlausu - einungis þarf að koma með góða skapið og ævintýraþrána. Oftast er farið í léttar gönguferðir þar sem fræðst er um það sem fyrir augu ber og slegið á létta strengi. Miðað er við að ferðir verði síðasta sunnudag hvers mánaðar fram til maí. Frekari upplýsingar fást á heimasíðum félaganna eða á þjónustuskrifstofunni í síma 535 6000. |