Word og Exel námskeið verður haldið á vegum Fræðslunets Suðurlands 27. febrúar - 21. mars mánudaga og miðvikudaga kl. 19:15 - 21:15.
Grunnþekking í tölvunotkun nauðsynleg.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa einhvern grunn í tölvunotkun. Farið verður í undirstöðuatriði í Word 10, uppsetningar, leturbreytingar og fl. Kynnt verða undirstöðuatriði í Excel 10, hvernig setja á inn formúlur, gera myndrit og útlitsmóta texta, sníða reiti og fl. Bókin UTN103 lögð til grundvallar.
Kennari: Leifur Viðarsson, tölvukennari Verð: 24.900 + námsefni UTN103 - 3.500 kr. Lengd: 18 stundir Dagar: Mánudagar og miðvikudagar Fjöldi: Hámark 14 Kennslustaður: Iða, Tryggvagötu 28, 800 Selfoss
Nánari upplýsingar á heimasíðu Fræðslunets Suðurlands. |