Orlofsuppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05.-30.04), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30.04. eða eru í starfi 01.05. kr. 27.800 hjá þeim sem starfar eftir kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins, Bílgreinasambandsins, Meistarasambands byggingamanna, Reykjavíkurborgar, Strætó og Orkuveitu Reykjavíkur. Sjá reiknivél til að finna út orlofs- og desemberuppbót
kr. 37.000 hjá þeim sem starfar eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga kr. 85.672 hjá þeim sem starfar eftir kjarasamningi Landsvirkjunar Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir. Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót. Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
|