Laugardaginn 21. september verður farið í árlegt ferðalag Félags iðn- og tæknigreina. Við munum leggja af stað frá Borgartúni 30 kl. 10:00 stundvíslega. Fararstjóri verður Sveinn Ingason og hann einn veit hvert farið verður. Félag iðn- og tæknigreina mun bjóða til hádegisverðar á leiðinni og í síðdegiskaffi. Við gerum svo ráð fyrir að vera aftur í Borgartúni um kl. 18.00. Nauðsynlegt er að þeir sem ætla með skrái sig í síðasta lagi fimmtudaginn 19. september á skrifstofum félagsins eða í síma 535-6000. |