Fulltrúar úr samninganefnd Samiðnar áttu fund með Samtökum atvinnulífsins þann 8. október. Lagðar voru fram sérkröfur Samiðnar f.h. aðildarfélaga vegna komandi kjarasamningsviðræðna. Um er að ræða kröfur sem lúta að öðrum málum en launalið kjarasamninga s.s. um vinnutíma, orlof, veikindarétt, aðbúnaðar- og öryggismál, uppsagnarfrest o.fl.