Vel var mætt á félags- og faggreinafund í Reykjanesbæ í gærkvöldi þann 24. nóvember. Á fundinum var farið yfir kjaramálin og stöðuna í þeim. Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Festu fór yfir málefni lífeyrissjóða, m.a. endurskoðun á lífaldurstöflu og tryggingafræðilega stöðu sjóðsins.
Næsti fundur verður í kvöld kl. 20.00 á Akranesi á Kirkjubraut 40, sal eldri borgara.
Hér má sjá svipmyndir af fundinum í Reykjanesbæ: