Aðalfundur Félags iðn- og tæknigreina 2018 verður haldinn í Borgartúni 30, 6. hæð laugardaginn 10. mars kl. 11:00

Dagskrá:
- Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu
- Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
- Kjöri stjórnar lýst.
- Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga, og uppstillinganefndar.
- Kosning endurskoðenda.
- Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að.
- Önnur mál
Hádegismatur í boði félagsins.
Félagið veitir ferðastyrk til þeirra félagsmanna sem búa í meira en 40 km fjarlægð frá fundarstað.
Stjórnin