Árlega ferð eldri félagsmanna Félags iðn- og tæknigreina verður farin föstudaginn 7. september.
Ferðirnar eru félögum að kostnaðarlausu en allir sem náð hafa 67 ára aldri eða verða 67 ára á árinu er boðið og gildir það einungis fyrir félagsmenn (án maka).
Lagt verður af stað frá Borgartúni 30 kl. 10 stundvíslega.
Félag iðn- og tæknigreina mun bjóða til hádegisverðar á leiðinni og í síðdegiskaffi.
Þeir sem ætla í ferðina verða vinsamlegast að skrá sig í síðasta lagi mánudaginn 3. september á skrifstofum félagsins eða í síma 535 6000.
Athugið að gefa þarf upp nafn, kennitölu, sveitarfélag og starfsheiti.