Húsið í Orlando.
Opnað verður fyrir leigu á húsinu í Orlando á Flórída fyrir árið 2022 mánudaginn 1. mars kl.13:00 til félagsmanna FIT.
Minnt er á að húsið rúmar 12 manns og sólarhringsleigan verður kr. 12.000.- auk þrifagjalds kr. 15.000.- fyrir hverja leigu. Staðgreiða þarf leiguna en bókanir og greiðsla er á orlofsvef FIT.
Sjá hérLeiga hefst kl. 16:00 á komudag og lýkur kl. 10:00 að morgni brottfarardags.