Desemberuppbót fyrir 2010 miðað við fullt starf er:
kr. 46.800 fyrir árið 2010
Uppbótin greiðist eigi síðar en 15.12. ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.12. Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1.12. til 30.11. ár hvert í stað almanaksárs.
Við 8. gr. um kaup og kjör iðnnema bætist: Iðnmenar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námastíma fái fulla desemberuppbót.
Desemberuppbót hjá ríkinu er kr. 46.800. Desemberuppbót hjá Reykjavíkurborg er kr. 50.000. Desemberuppbót hjá öðrum sveitarfélögum er kr. 72.399.
Sjá útreikning desemberuppbótar. |