Lögfræðiþjónusta

Lögfræði þjónusta félagsmanna

Mandat lögmannsstofa sinnir lögfræðilegum verkefnum fyrir Félag Iðn- og tæknigreina og félagsmenn þess.

Félagsmönnum Félags Iðn- og tæknigreina er veittur afsláttur af lögfræðikostnaði og geta þeir snúið sér beint til stofunnar telji þeir sig þurfa á þjónustu lögmanns að halda. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu stofunnar: www.mandat.is og í síma 511 1190.

Þessi þjónusta, sem í boði er fyrir félagsmenn  Félags Iðn- og tæknigreina , er ekki einungis á sviði vinnuréttar og verkalýðsmála heldur á flestum þeim sviðum sem félagsmenn geta þurft á lögmanni að halda. Til dæmis vegna slysa, vinnuslysa og umferðarslysa, fasteignagalla, hjónaskilnaða og líka ef þörf gerist fyrir verjanda í refsimáli.