Svefnpláss og sængur eru fyrir átta manns. Á veröndinni er heitur pottur. Gætið þess að byrgja ávallt pottinn ef vatn er í honum og hann ekki í notkun. Enginn umsjónarmaður er á staðnum. Þess má geta að á vetrum er leiðin um Laugarvatn rudd á föstudögum og á sunnudögum. Húsið er 52 fm að stærð, skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu með eldhúskróki og baðherbergi. Sjónvarp, myndbandstæki, örbylgjuofn og gasgrill er í húsinu. |