Málaraiðn
Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni
Málaraiðn er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, samtals fjórar annir í skóla og 96 vikna starfsþjálfun.
Meginmarkmið með námi í málaraiðn er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við alla algenga verkþætti iðngreinarinnar, allt frá mati á ástandi flatar og þar til æskilegri lokaáferð er náð.
Einnig að útfæra ýmsa sérhæfða verkþætti eins og sandspörtlun bygginga, skrautmálun ýmiss konar, skiltagerð og ýmsar útfærslur á eldra handverki s.s. málun marmara- og viðarlíkinga.
Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.