Eyðublöð

Sjúkrasjóður

Hægt er að fylla út í tölvunni og prenta síðan út, undirrita og senda til félagsins ásamt viðeigandi kvittunum. Skanna má inn undirritaða umsókn og senda í tölvupósi á sjukra@fit.is eða póstleggja umsóknina.  Mikilvægt er að allar upplýsingar sem gefnar eru séu réttar því rangar upplýsingar geta varðað bótamissi. Einnig er mikilvægt að allar upplýsingar sem beðið er um á eyðublaðinu fylgi með svo hægt sé að afgreiða umsóknir sem fyrst. Greiðsludagur styrkja úr sjúkrasjóði er næsta þriðjudag eftir að umsókn hefur verið tekin til afgreiðslu og samþykkt. Greiðsla sjúkradagpeninga og dánarbóta er í lok mánaðar

Athugið að kvittun (reikningur) má ekki vera eldri en 6 mánaða og þarf að vera fullgild (það er með dagsetningu og stimpli eða merki viðkomandi fyrirtækis). Einnig þarf að koma fram nafn og kennitala viðkomandi félagsmanns.

Reglugerð sjúkrasjóðs

Menntasjóður

Sótt er um styrki úr Menntasjóði inni á Mínum Síðum FIT.  Mikilvægt er að allar upplýsingar sem gefnar eru séu réttar því rangar upplýsingar geta leitt til þess að umsókn sé hafnað. Einnig er mikilvægt að allar upplýsingar sem beðið er um fylgi með svo hægt sé að afgreiða umsóknir sem fyrst. Greiðsludagur styrkja úr Menntasjóði er næsta þriðjudag eftir að umsókn hefur verið tekin til afgreiðslu og samþykkt.

Reglugerð menntasjóðs

Vottorð atvinnurekanda

Hægt er að fylla út í tölvunni og prenta síðan út, undirrita og senda til félagsins. Skanna má inn undirritað vottorð og senda í tölvupósi á sjukra@fit.is, senda símbréf á 535 6020 eða póstleggja vottorðið.

Persónuafsláttur

Hægt er að fylla út í tölvunni og prenta síðan út, undirrita og senda til félagsins. Skanna má inn undirritað vottorð og senda í tölvupósi á sjukra@fit.is, senda símbréf á 535 6020 eða póstleggja vottorðið.